Göngudeild
Læknar og meðferðaraðilar
Læknir göngudeildarinnar er Birkir Sveinsson. Hann kemur reglulega á deildina og sinnir sjúklingum.
Tveir meðferðaraðilar starfa á göngudeildinni, þær Joana Brazaitiene og Jórunn Silla Geirsdóttir sjúkraliðar. Þær taka við skjólstæðingum sem hafa fengið tilvísun frá húðlækni um ljósameðferð en kjósi skjólstæðingar að koma í Bolholt í meðferð þarf að biðja húðlækni sérstaklega um það.
Tímapantanir fara í gegnum móttöku göngudeildar í síma 588-9620 eða með tölvupósti á gongudeild@spoex.is
Ljósameðferð
Á göngudeildinni eru tveir ljósaskápar, handa- og fótaljós og greiður. Þangað geta þeir sjúklingar leitað sem þurfa á UVB eða UVA ljósameðferð að halda. Sjúklingar þurfa ekki að panta tíma heldur mæta hvenær sem er á auglýstum opnunartíma.
Mikið er lagt upp úr því að vera alltaf með allan okkar búnað í góðu ástandi, tækin eru reglulega yfirfarin og skipt er um perur í samræmi við ráðleggingar frameiðanda. Það er mjög mikilvægt að svo sé gert svo sú meðferð sem hver og einn er að sækja beri tilætlaðan árangur.
Ljósameðferðir í læknisfræðilegum tilgangi snúast um að baða húðina reglulega í útfjólubláum geislum undir eftirliti læknis. Notast er við skápa þegar veita á meðferð á allan líkamann en einnig eru til sérstök handa- og fótaljós og ljósagreiður fyrir hársvörð. Tilvísun þarf til að hefja ljósameðferð og þær koma í langflestum tilfellum frá húðsjúkdómalæknum en í stöku tilfella ávísa heilsugæslulæknir slíku eða annars konar sérfræðingur. Húðlæknir metur hversu oft þarf að veita meðferð en yfirleitt er ráðlagt að koma 3x í viku, helst annan hvern dag.
Það eru tvær sturtur við klefana og hægt er að leigja handklæði á vægu verði ef svo ber undir. Mælt er með stuttri sturtuferð fyrir meðferð í ljósaskápum til að auka áhrif geislanna. Einnig mæla sjúkraliðar Spoex með því að afhreistra blettina á kvöldin fyrir komu í ljós daginn eftir. Það er gert með því að nota góð shampó, krem og smyrsli. Sjúkraliðar Spoex veita nánari upplýsingar um hvert tilfelli fyrir sig.
Opnunartími
Vetraropnunartími göngudeildar Spoex er eftirfarandi:
MÁN
11-18
ÞRI
11-15
MIÐ
11-18
FIM
11-15
FÖS
11-17
Staðsetning
Göngudeild Spoex er til húsa í Bolholti 6, 105 Reykjavík.